Hoppa yfir valmynd
14. febrúar 2019

Staða lektors í ferðamálafræði/þjónustustjórnun

 
Staða lektors í ferðamálafræði/þjónustustjórnun 
við Háskólann á Hólum


Við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum er laus full staða lektors. Leitað er eftir umsækjanda með þekkingu og reynslu til að efla rannsóknir og kennslu á fyrrgreindu fræðasviði. Starfsstöð er á Hólum.

Ferðamáladeild Háskólans á Hólum býður námsbrautir í ferðamálafræðum til BA og MA gráðu, námsbraut í stjórnun og móttöku gesta til BA gráðu og diplómunám í viðburðastjórnun og ferðamálafræði. Allar námsleiðir eru boðnar sem fjarnám með staðbundnum lotum að Hólum í Hjaltadal. Áhersla er lögð á rannsóknir og þróunarverkefni í ferðamálum dreifbýlis, viðburðastjórnun, og stjórnun ferðaþjónustu og móttöku gesta. Starfsaðstaða deildarinnar í háskólaþorpinu á Hólum er góð, þar er fjölskylduvænt samfélag og falleg náttúra á sögustað. Sjá nánar á www.holar.is 

Í starfinu felst:
kennsla í grunn- og framhaldsnámi
rannsóknir á sviði ferðamála með áherslu á ferðaþjónustu í dreifbýli (e. rural tourism) 
þátttaka í alþjóðlegum verkefnum og samstarfi
þátttaka í gæðastarfi og stjórnun deildarinnar og háskólans

Menntunar- og hæfnikröfur:
doktorspróf í ferðamálafræði eða skyldum greinum
reynsla af rannsóknum á sérsviðum Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum
hæfni í samstarfi og lipurð í mannlegum samskiptum
ábyrgð, frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni

Til greina kemur tímabundin ráðning einstakling, sem er að ljúka doktorsprófi.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Háskólann á Hólum. Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2019, og umsækjandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2019. Nánari upplýsingar um starfið veitir Laufey Haraldsdóttir deildarstjóri ferðamáladeildar (sími 4556322, 8636011, netfang [email protected]

Umsóknir skulu berast á netfangið [email protected] merkt „lektor Ferðamáladeild“. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, ferilskrá og samantekt fræðastarfs, auk greinargerðar um áform ef til ráðningar kemur. Með umsókn skal einnig fylgja úrval eigin ritverka sem umsækjandi vill að tekið sé tillit til við mat á hæfi, sem og tvenn meðmæli. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 
 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum