Hoppa yfir valmynd
17. janúar 2019

Ráðgjafi í snemmtækri íhlutun

Ráðgjafi í snemmtækri íhlutun

Þroskaþjálfi óskast til starfa á yngri barna svið á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins.

Starfssvið
• Þroskaþjálfun smábarna með þroskafrávik.
• Ráðgjöf og eftirfylgd til fjölskyldna og fagfólks vegna ungra barna með þroskafrávik.
• Vinna í þverfaglegu teymi. 
• Þátttaka í fræðslu og rannsóknarstarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
• Þroskaþjálfamenntun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. 
• Reynsla af snemmtækri íhlutun.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og til þátttöku í þverfaglegu samstarfi.

Um er að ræða 80 - 100% starfshlutfall og gott að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. Laun greiðast skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags við ríkissjóð.

Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, berist Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Digranesvegi  5, 200 Kópavogi, eða í tölvupósti á [email protected] fyrir 4. febrúar 2019. Öllum umsóknum verður svarað.

Vegna kynjasamsetningar á vinnustaðnum eru karlmenn hvattir til að sækja um.

Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Upplýsingar um starfið veitir Helga Kristinsdóttir sviðstjóri í síma 5108400 eða á netfang: [email protected].

Meginhlutverk Greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaraskanir sem geta leitt til fötlunar síðar á ævinni, fái greiningu, ráðgjöf og önnur úrræði sem miða að því að draga úr afleiðingum röskunarinnar, svo og sinna langtímaeftirfylgd með einstaklingum sem búa við óvenjuflóknar eða sjaldgæfar þroskaraskanir. Jafnframt að afla og miðla fræðilegri þekkingu á sviði fötlunar svo og þróun, rannsóknir og dreifing á aðferðum og gögnum til greiningar á fötlunum og þroskaröskunum og mismunandi meðferðaraðferðum.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er framsækin stofnun með fjölskylduvæna starfsmannastefnu sem býður m.a. upp á sveigjanlegan vinnutíma.  Nýir starfsmenn fá handleiðslu og starfsþjálfun á aðlögunartíma og er lögð áhersla á þróun í starfi og tækifæri til sí- og endurmenntunar.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum