Hoppa yfir valmynd
22. ágúst 2019

Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu og sjúkrasviði - Sauðárkrókur

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki, Hjúkrunarfræðingur á heilsugæslu og sjúkrasviði

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í 80-100% starf. 50% starfsins er unnið í dagvinnu á heilsugæslunni og 30-50% á sjúkradeild. 
Staðan er veitt frá 1. október 2019 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum um heilsugæsluþjónustu. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Viðbótarmenntun í heilsugæsluhjúkrun eða öðru námi sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar
- Jákvæðni og sveigjanleiki 
- Ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN. 

Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Herdís Klausen - [email protected] - 455 4011


Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sauðárkrókur Heilsugæsla
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum