Hoppa yfir valmynd
4. apríl 2019

Lektor í smitsjúkdómafræði – Heilbrigðisvísindasvið

Lektor í smitsjúkdómafræði – Heilbrigðisvísindasvið - Háskóli Íslands - Reykjavík

Laust er til umsóknar 25% starf lektors í smitsjúkdómafræði á fræðasviði lyflækninga við Læknadeild Háskóla Íslands. Forsenda fyrir ráðningu í starf lektors er að umsækjandi sé við störf á Landspítala og hafi þar aðstöðu á lyflækningasviði til að sinna klínískri kennslu læknanema.

Sem lektor mun sá sem ráðinn verður uppfylla sína kennsluskyldu innan fræðasviðs lyflækninga, þ.m.t. klínísk kennsla á Landspítala. Þá stundar hann rannsóknir í sinni sérgrein á fræðasviðinu.

Menntunar- og hæfniskröfur: 
Doktorspróf eða próf sem jafnað verður til doktorsprófs, eða jafngild hæfni að mati dómnefndar.
Sérfræðileyfi í smitsjúkdómafræði og starfi á því sviði.  
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum. 
Góð reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klínískri, 
Reynsla af leiðbeiningu til æðri háskólagráðu. 
Stjórnunarreynsla æskileg. 
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er æskileg. 
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Umsóknarfrestur um ofangreint starf er til og með 6. maí 2019.

Nánari upplýsingar um starfið veita Magnús Gottfreðsson, prófessor (s. 543-1000 / [email protected]) og Engilbert Sigurðsson, forseti Læknadeildar (s. 525-4879 / [email protected]).

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. 

Umsækjendur skulu láta fylgja með umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og rannsóknaráætlun ef til ráðningar kemur. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Ef ekki er unnt að skila fylgigögnum með umsókn á rafrænu formi skal skila þeim í þríriti til vísindasviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 15. ágúst 2019 enda verði störfum nefnda, sem um málið fjalla, þá lokið.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á
málstefnu Háskóla Íslands. 

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum