Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2018

Hagfræðingur á skrifstofu efnahagsmála

HAGFRÆÐINGUR Á SKRIFSTOFU EFNAHAGSMÁLA

Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að metnaðarfullum og framsæknum hagfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði efnahagsmála. Starfið felur í sér stefnumörkun, ráðgjöf og greiningar. Um er að ræða nýtt starf skrifstofu efnahagsmála.

Skrifstofa efnahagsmála hefur umsjón með undirbúningi og eftirfylgni með efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, samhæfingu opinberrar hagstjórnar og kynningu á efnahags- og hagstjórnarmálum innanlands og utan. Í því skyni annast skrifstofan mat á þróun og horfum í efnahagsmálum og samskipti við Hagstofu Íslands um gerð þjóðhagsspár. Skrifstofan annast gerð hagfræðilegra athugana, sviðsmynda- og frávikagreiningar, vöktun hagstærða og samskipti við erlend matsfyrirtæki og ýmsar alþjóðlegar stofnanir á sviði efnahagsmála, þ.m.t.

Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Efnahags- og framfarastofnunina (OECD). Skrifstofan starfar náið með öðrum skrifstofum ráðuneytisins varðandi framgang stefnu ríkisstjórnarinnar í opinberum fjármálum.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
» Stefnumörkun og ráðgjöf í hagstjórn.
» Samþætting heildarstefnu í efnahagsmálum.
» Greiningar á stöðu og horfum í efnahagsmálum.
» Kynningar á stöðu og þróun efnahagsmála í ræðu og riti.
» Þátttaka í alþjóðastarfi og samskipti við erlendar stofnanir og aðila á fjármálamarkaði.

Menntunar- og hæfniskröfur
» Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 
» Meistaranám í hagfræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfinu.
» Þekking á efnahagsmálum í þjóðhagslegu samhengi og opinberri hagstjórn.
» Reynsla af greiningarvinnu sem nýtist í starfi.
» Greinandi, gagnrýnin og lausnamiðuð hugsun.
» Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti er skilyrði og góð enskukunnátta er nauðsynleg.
» Reynsla af notkun hagrannsóknaforrita á borð við Eviews kostur. 
» Góð samskipta- og skipulagshæfni auk hæfileika til að leiða teymisvinnu.

Í boði er áhugavert starf á krefjandi og skemmtilegum vinnustað. Á skrifstofu efnahagsmála starfa nú 4 starfsmenn en í ráðuneytinu eru alls um 90 starfsmenn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember. 

Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Hagvangs www.hagvangur.is

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Inga S. Arnardóttir hjá Hagvangi ([email protected]) og Aldís Stefánsdóttir í fjármála-og efnahagsráðuneytinu ([email protected]). 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum