Hoppa yfir valmynd
27. nóvember 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Reglugerðir um starfsleyfi þeirra sem sinna félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk

Tekið hafa gildi tvær nýjar reglugerðir félags- og jafnréttismálaráðherra þar sem kveðið er á um að félagasamtök, sjálfseignarstofnanir og aðrir þjónustu- og rekstraraðilar sem sinna félagsþjónustu og þjónustu við fatlað fólk samkvæmt lögum þar að lútandi, skuli starfa á grundvelli starfsleyfis frá velferðarráðuneytinu.

Reglugerðirnar eiga sér stoð í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og lögum um þjónustu við fatlað fólk  með langvarandi stuðningsþarfir.

Umsjón og umsýsla vegna þessara starfsleyfa verður hjá Gæða- og eftirlitsstofnun félagsþjónustu og barnaverndar sem tekur á móti umsóknunum og annast útgáfu þeirra í nafni ráðuneytisins.

Unnið er að gerð rafrænna eyðublaða vegna útgáfu starfsleyfanna og er áætlað að byrjað verði að taka við umsóknum 1. janúar 2019.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum