Hoppa yfir valmynd
27. júní 2011 Matvælaráðuneytið

Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum

Mánudaginn 20. júní 2011, rann út tilboðsfrestur í tollkvóta á blómum vegna seinni hluta ársins 2011.

 

Þrjú gild tilboð bárust um innflutning á blómstrandi pottaplöntum, (0602.9091) samtals 3.500 stk. á meðalverðinu 110 kr./stk.  Hæsta boð var 155 kr./stk. en lægsta boð var 100 kr./stk.  Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.500 stk. á meðalverðinu 119 kr. stk.

Þrjú gild tilboð bárust um innflutning á öðrum pottaplöntum, (0602.9093) samtals 4.100 stk. á meðalverðinu 109 kr./stk.  Hæsta boð var 155 kr./stk. en lægsta boð var 100 kr./stk.  Tilboði var tekið frá tveimur fyrirtækjum um innflutning á 1.800 stk. á meðalverðinu 118 kr. stk.

Eitt tilboð barst um innflutning á tryggðablómum (0603.1400) samtals 6.500 stk., á meðalverðinu 5 kr. stk.

Þrjár umsóknir bárust um innflutning á afskornum blómum, samtals 73.000 stk. og náðu umsóknir ekki tilteknum stykkjafjölda sem í boði var eða 118.750 stk. Úthlutað var án útboðs.

Að tillögu ráðgjafanefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara hefur sjávarútvegs- og  landbúnaðarráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða/umsókna þeirra:

 

Blómstrandi pottaplöntur júlí - desember 2011

Magn (stk) Tilboðsgjafi
      500 Gróðurvörur ehf
   1.000 Húsasmiðjan/Blómaval

 

Aðrar pottaplöntur júlí - desember 2011

Magn (stk) Tilboðsgjafi
      500 Gróðurvörur ehf
   1.300  Húsasmiðjan/Blómaval

 

Tryggðablóm júlí - desember 2011

Magn (stk) Tilboðsgjafi
  6.500 Samasem ehf

 

Afskorin blóm júlí – desember 2011

Magn (stk) Tilboðsgjafi
  8.000 Gróðurvörur ehf
20.000 Grænn Markaður ehf
45.000 Samasem ehf

 

Reykjavík, 27. júní 2011

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum