Hoppa yfir valmynd
16. maí 2019

Sérfræðingur á ráðgjafar- og fræðslusvið

 
 
Sérfræðingur á ráðgjafar- og fræðslusvið 

Umsóknarfrestur framlengdur til og með 15. júní nk.

Ráðgjafar- og fræðslusvið stýrir og skipuleggur ráðgjöf og fræðslu fyrir barnaverndarnefndir og starfsmenn þeirra, veitir samstarfsaðilum og almenningi leiðbeiningar um barnavernd og stýrir fræðslu, þróun og innleiðingu aðferða við vinnslu barnaverndarmála. Auk þess heldur sviðið utan um vinnslu tölfræðilegra upplýsinga fyrir Barnaverndarstofu og stýrir gerð ársskýrslu stofunnar.

Helstu verkefni og ábyrgð: 
Ráðgjöf og samskipti um barnavernd við starfsfólk barnaverndar, samstarfsaðila og almenning.
Innleiðing og þróun gagnreyndra aðferða á sviði barnaverndar. 
Aðkoma að þróun og framkvæmd fræðslu fyrir barnaverndarnefndir og starfsfólk þeirra.
Samskipti við barnaverndarnefndir vegna söfnunar tölulegra upplýsinga.
Aðkoma að úrvinnslu tölulegra upplýsinga og umsjón með heimasíðu. 

Menntunar- og hæfniskröfur:
Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis- eða félagssviði.
Krafa um þekkingu á starfi barnaverndar, reynsla af barnaverndarstarfi æskileg.
Hæfni til að tjá sig skipulega í ræðu og riti.
Þekking og reynsla af úrvinnslu tölfræðilegra upplýsinga æskileg.
Krafa um þekkingu og áhuga á gagnreyndum aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur.
Krafa um þekkingu á sviði frávika í hegðun og þroska barna og unglinga.
Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
Krafa um góða enskukunnáttu í rituðu og töluðu máli og æskileg kunnátta í einu Norðurlandamáli.

Persónulegir eiginleikar:
Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, markmiðatengt og lausnamiðað.
Lögð er áhersla á sjálfstæði í vinnubrögðum.
Mikilvægt að búa yfir góðri samstarfshæfni, sveigjanleika og jákvæðu viðhorfi til skjólstæðinga og samstarfsaðila. 

Sérfræðingar á ráðgjafar- og fræðslusviði eru staðsettir á skrifstofu Barnaverndarstofu í Borgartúni 21, 105 Reykjavík.

Um fullt starf er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á stofuna. 

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Sigurjónsdóttur, mannauðsstjóra Barnaverndarstofu, í síma 530 2600 eða [email protected]. Umsóknir skulu berast til Barnaverndarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum