Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2020

Kennari í þýsku

Kennari í þýsku


Menntaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara, með háskólapróf í þýsku, (sbr.lög nr.95/2019) fyrir skólaárið 2020-2021.


Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla og námsmat
Faglegt samstarf

Leitað er að vel menntuðum kennara með full réttindi á framhaldsskólastigi. Umsækjandi þarf að geta kennt bæði byrjendum og lengra komnum. Sérstaklega er sóst eftir kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. 


Hæfnikröfur
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf í þýsku eða skyldum greinum (sbr. lög nr. 95/2019) og leyfisbréf.


Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í öflugu skólasamfélagi.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.


Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Starfatorg (www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Umsókn getur gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.


Upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans.


Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.08.2020


Nánari upplýsingar veitir
Elísabet Siemsen - [email protected] - 5451900


Menntaskólinn í Reykjavík
Kennslusvið
Lækjargata 7
101 Reykjavík

 

Smellið hér til að sækja um starf


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum