Hoppa yfir valmynd
10. júní 2020

Sjúkraliði óskast á bráðamóttöku Landspítala

Sjúkraliði óskast á bráðamóttöku Landspítala


Við viljum ráða tvo sjúkraliða til starfa frá 15. ágúst 2020 á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Deildin er opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Þangað koma allir sjúklingahópar Landspítala og er því starfið fjölbreytt og engir dagar eins. 

Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er náið með öllum starfsstéttum. Tækifæri eru til að öðlast víðtæka þekkingu, færni og miklir möguleikar til framþróunar. Á deildinni ríkir sérstaklega góður starfsandi. Nýir starfsmenn fá handleiðslu og góða einstaklingsmiðaða aðlögun. Starfshlutfall er 60-100%, unnið er á þrískiptum vöktum.


Helstu verkefni og ábyrgð
» Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
» Virk þátttaka í teymisvinnu


Hæfnikröfur
» Jákvætt viðmót, frumkvæði í starfi
» Góð samskiptahæfni og hæfni til að starfa í teymi
» Sjálfstæð vinnubrögð og hæfni til að vinna undir álagi
» Góð íslenskukunnátta
» Íslenskt sjúkraliðaleyfi


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.


Starfshlutfall er 60 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2020


Nánari upplýsingar veitir
Helga Rósa Másdóttir - [email protected] - 825 5167
Rut Tryggvadóttir - [email protected] - 825 9309



Landspítali
Bráðamóttaka
Fossvogi
108 Reykjavík



Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum