Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2020

Rannsóknarlögreglumaður - tímabundin afleysing

Rannsóknarlögreglumaður - Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra - tímabundin afleysing

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausa til umsóknar stöðu rannsóknarlögreglumanns við embættið. Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs og verður starfsstöð á Akureyri. 

 

Helstu verkefni og ábyrgð
Leiða af hlutverki lögreglu, eins og það er skilgreint í 1. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 og 9. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglunnar. Á verksviði og ábyrgð rannsóknarlögreglumanns eru rannsóknir viðameiri og flóknari mála, þar á meðal tæknirannsóknir, sem vegna eðlis krefjast aukinnar sérþekkingar, verkstjórn hóps lögreglumanna við rannsókn mála þegar það á við, og náið samstarf við ákærendur og eftir atvikum aðstoð við undirbúning saksóknar. 


Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Samkvæmt 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um starfstig innan lögreglunnar skal umsækjandi hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti tvö ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum. Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja reynslu af rannsóknum og þekkingu á helstu rannsóknaraðferðum. Góð þekking á landskerfum lögreglu og staðgóð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg, en einnig er tungumálakunnátta kostur. Nauðsynlegt er að viðkomandi búi yfir skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum, sýni frumkvæði og sjálfstæði í starfi og hafi yfir að búa færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp. Leitað er að einstaklingum með reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa hæfileika.


Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem gerst hefur sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsingar úr sakaskrá og málaskrám lögreglu, sbr. 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996. 


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfshlutfall er 100%, með bakvaktaskyldu. 

Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðuna í 12 mánuði, frá og með 15. ágúst 2020. 

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um setningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. 

Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. 


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.07.2020


Nánari upplýsingar veitir
Kristján Kristjánsson - [email protected] - 444-2800
Bergur Jónsson - [email protected] - 444-2800


Lögreglustjórinn á Norðurl eystra (06316)
Þórunnarstræti 138
600 Akureyri


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum