Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2008 Innviðaráðuneytið

Samkomulag um samgöngumiðstöð

Samkvæmt samkomulagi sem samgönguráðherra og borgarstjóri hafa innsiglað verður samgöngumiðstöð reist á Reykjavíkurflugvelli og hún tekin í notkun fyrir lok næsta árs. Þetta var niðurstaða fundar ráðherra og borgarstjóra á mánudag.

Bæði ráðherra og borgarstjóri fögnuðu þessari niðurstöðu, sem byggir á þriggja ára gömlu samkomulagi þáverandi borgarstjóra og samgönguráðherra um samgöngumiðstöð. Gert er ráð fyrir að miðstöðin rísi norðan við Hótel Loftleiði og í hönnun hennar verði gert ráð fyrir að hún geti staðið og þjónað tilgangi burtséð frá því hvar flugvellinum verður valið framtíðarstæði. Samgöngumiðstöðinni er ætlað að þjóna einnig leigubílum, rútum og strætisvögnum. Borgin gerir ráð fyrir að ljúka skipulagsvinnu vegna byggingar miðstöðvarinnar á næstu 100 dögum.

Flugstoðir munu stofna sérstakt félag um samgöngumiðstöðina en hún verður reist í einkaframkvæmd. Stefnt er að því að hún verði fullbyggð 2010 en fyrsti áfangi verði tilbúinn 2009.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum