Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2022

Auglýsing framboðslista

Landskjörstjórn vekur athygli á að þegar niðurstaða yfirkjörstjórnar sveitarfélags liggur fyrir um gildi framboða við sveitarstjórnarkosningar skal hún auglýsa framboðslistana á vef sveitarfélagsins og á vef landskjörstjórnar, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 330/2022 um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar.

Í auglýsingu sveitarfélagsins skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar.

  1. Heiti stjórnmálasamtaka sem bjóða fram listann og listabókstafur þeirra.
  2. Nöfn frambjóðenda hvers lista í réttri röð.
  3. Kennitala frambjóðenda.
  4. Lögheimili frambjóðenda í þágufalli án tilgreiningar á póstnúmeri.
  5. Staða eða starfsheiti frambjóðenda.

Landskjörstjórn mælist til þess að yfirkjörstjórnir sendi landskjörstjórn á [email protected]  hlekk á auglýsingu sveitarfélagsins um framboð eins og hún birtist á vef sveitarfélagsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum