Hoppa yfir valmynd
17. maí 2019

Embætti prests í Langanes- og Skinnastaðarprestakalli

Biskup Íslands auglýsir embætti prests í Langanes- og Skinnastaðarprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi 

Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Langanes- og Skinnastaðarprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Skipað er í embættið frá 1. september 2019 til fimm ára. 

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016 og um presta nr. 1011/2011, svo og leiðbeinandi reglna biskups Íslands frá 2017 fyrir umsækjendur um laus prestsembætti. Með því að sækja um embættið staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur. Starfsreglur þessar eru á vef kirkjunnar kirkjan.is. 
Í Langanes- og Skinnastaðarprestakalli eru sex sóknir með tæplega þúsund íbúa og er sóknarkirkja í hverri sókn. 

Áskilinn er réttur til að skilgreina skyldur sem embættinu tilheyri við prófastsdæmið og biskupsstofu eða önnur kirkjuleg stjórnvöld. 

Vísað er til þarfagreiningar sókna prestakallsins varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Auglýsing þessi og þarfagreining er birt á vef kirkjunnar, www.kirkjan.is undir laus störf. 
Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. framangreindra starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups. 
Kjörnefnd prestakallsins kýs prest úr hópi framangreindra umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. fyrrgreindar starfsreglur um val og veitingu prestsembætta.  Báðum þessum nefndum er veittur tímabundinn rafrænn aðgangur að umsóknum og fylgigögnum með þeim. 
Umsækjendur geri skriflega grein fyrir starfsferli, samskiptahæfileikum og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunnum svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun eftir atvikum. 

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn og væntingar er varða embættið. 

Umsækjendum ber að fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 3. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Eyðublaðið má finna á vef kirkjunnar www.kirkjan.is undir laus störf. 

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 15. gr. framangreindra starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Skrifleg ósk um kosningu skal hafa borist biskupi eigi síðar en hálfum mánuði eftir að prestakallið var auglýst laust til umsóknar. 

Um embættið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta. 

Um laun og önnur kjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs. 

Nánari upplýsingar um embættið, starfskjör og helstu lög og reglur sem um starfið gilda eru veittar  hjá sr. Jóni Ármanni Gíslasyni, prófasti Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis og sóknarpresti Langanes- og Skinnastaðarprestakalls, s. 465 2250 og á Biskupsstofu, s. 5284000.  

Umsóknarfrestur um embættið er til miðnættis þriðjudaginn 18. júní 2019. Áskilinn er réttur, ef þörf krefur, til að fresta störfum kjörnefndar prestakallsins og þar með kosningu til embættisins fram í ágúst mánuð 2019, vegna sumarleyfa. 

Sækja ber um embættið rafrænt á vef kirkjunnar og leggja fram tilskilin fylgigögn á rafrænu formi ásamt öðrum þeim gögnum er umsækjandi kann að vilja leggja fram. 

Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008. 

Vakin er athygli á því að nöfn umsækjenda um embættið verða birt á vef kirkjunnar www.kirkjan.is að liðnum umsóknarfresti  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum