Hoppa yfir valmynd
4. desember 2019

Starfsmaður á bókasafni og í skjalavörslu

                  
Starfsmaður á bókasafni og í skjalavörslu
 
Fjölbrautaskóli Suðurnesja óskar eftir því að ráða starfsmann á bókasafn skólans sem einnig gæti unnið við skjalavörslu og almenn skrifstofustörf. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi ríkissjóðs og SFR (Sameyki) skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans. Ráðningartími er frá 1. janúar 2020.

Ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði en umsókn með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skila í tölvupósti til skólameistara á netfangið [email protected] eigi síðar en 16. desember 2019. Leitað er að starfsmanni sem er góður í samskiptum og getur unnið sjálfstætt.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Sakavottorð fylgi umsókn.

Nánari upplýsingar má fá í síma 421-3100 eða í tölvupósti hjá Kristjáni Ásmundssyni skólameistara, [email protected] og Guðlaugu Pálsdóttur aðstoðarskólameistara, [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.                                                                  

Skólameistari

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum