Hoppa yfir valmynd
9. nóvember 2018

Sérfræðingur á rekstrarsviði

Sérfræðingur á rekstrarsviði

Landhelgisgæsla Íslands leitar að áhugasömum einstaklingi til að slást í samhent teymi Gæslunnar. 
Viðkomandi þarf að vera traustur, með ríka þjónustulund og geta tekist á við krefjandi verkefni. 

Helstu verkefni: 
• Dagleg stýring á bókhaldi
• Umsjón með mánaðarlegum uppgjörum og greiningum • Ársreikningagerð
• Aðstoð við rekstrarspá og áætlanagerð
• Samantekt og framsetning tölfræðiupplýsinga
• Ýmis umbóta¬ og þróunarverkefni
• Önnur tilfallandi verkefni 

Menntunar- og hæfniskröfur: 
Menntun á sviði viðskipta, áhersla á reikningshald kostur 
Góð þekking á reikningsskilastöðlum og lögum um bókhald og ársreikninga 
Góð færni í Excel áskilin ásamt þekkingu á helstu Office forrit 
Þekking á Oracle bókhaldskerfi og/eða Cognos áætlanakerfi kostur 
Reynsla af bókhaldi og afstemmingum æskileg 
Hæfni til að koma frá sér upplýsingum á skýran og hnitmiðaðan hátt í ræðu og riti 
Góð íslenskukunnátta nauðsynleg og góð færni í ensku æskileg 
Góð samskiptafærni og sjálfstæði í starfi 

Landhelgisgæsla Íslands er borgaraleg öryggis-, eftirlits- og löggæslustofnun sem sinnir öryggisgæslu og björgun á hafi úti og fer með löggæslu á hafinu. Samkvæmt lögum nr. 52/2006 um Landhelgisgæslu Íslands er henni falið að gæta ytri landamæra og standa vörð um fullveldisrétt Íslands á hafsvæðinu í kringum landið. 
Hjá Landhelgisgæslunni starfar tæplega 200 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! 

Gildin okkar eru: 
Öryggi – Þjónusta – Fagmennska 

Höfuðstöðvar eru í Skógarhlíð 14 í Reykjavík en starfsstöðvar eru einnig á Keflavíkur og Reykjavíkurflugvelli, í varðskipum og á ratsjárstöðvum. 
Starfsstöð er í Reykjavík. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á www.hagvangur.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 

Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember nk. 

Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðkomandi stéttafélags
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst

Áslaug Kristinsdóttir - [email protected] veitir nánari upplýsingar um starfið. 

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum