Embætti skrifstofustjóra Landsréttar auglýst
Landsréttur hefur auglýst laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra Landsréttar. Umsóknarfrestur um embættið er til 8. september næstkomandi.
Hér fer á eftir auglýsing Landsréttar
Landsréttur auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra Landsréttar. Landsréttur tekur til starfa 1. janúar 2018 á grundvelli laga nr. 50/2016, um dómstóla. Skrifstofustjóri stýrir daglegum rekstri dómstólsins eftir nánari ákvörðun forseta réttarins og í umboði hans, auk þess að gegna öðrum störfum sem forseti kann að mæla fyrir um, sbr. 23. gr. laga nr. 50/2016. Skrifstofustjóri mun koma að undirbúningi og skipulagningu Landsréttar með forseta og dómurum réttarins og æskilegt að hann geti hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
- Embættispróf í lögfræði eða grunnnám ásamt meistaraprófi í lögum.
- Þekking og reynsla á sviði réttarfars og stjórnsýslu.
- Þekking á rekstri og starfsemi dómstóla.
- Stjórnunarhæfileikar, samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Tölvufærni og þekking á sviði upplýsinga- og tæknimála.
Forseti Landsréttar skipar í embættið til fimm ára. Laun og starfskjör skrifstofustjóra fara eftir ákvörðun stjórnar dómstólasýslunnar.
Umsóknarfrestur er til 8. september 2017. Áskilið er að umsóknir og fylgigögn berist með rafrænum hætti á netfangið [email protected].
Nánari upplýsingar veitir Hervör Þorvaldsdóttir forseti Landsréttar, [email protected].
Sjá einnig