Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2018

Reiðkennari

Reiðkennari við Háskólann á Hólum
Laust er til umsóknar fullt starf reiðkennara við Hestafræðideild Háskólans á Hólum. Hestafræðideild háskólans veitir fagmenntun á sviði hestafræða, tamninga, reiðmennsku og reiðkennslu og vinnur að þróun og nýsköpun fræðasviðsins í rannsóknastarfi. Hólar eru fjölskylduvænn staður og á staðnum er leik- og grunnskóli. 

Starfssvið
Reiðkennsla nemenda.
Þjálfun á hestakosti skólans. 

Menntunar- og hæfnikröfur
Reiðkennaramenntun og reynsla af reiðkennslu, keppni og sýningum. 
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Umsóknarfrestur um stöðuna er til 23. júlí 2018 og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Háskólinn hvetur jafnt  karla og konur til að sækja um.

Vinsamlega sendið umsóknir ásamt ferilsskrá og staðfestingu á menntun til Háskólans á Hólum á netfangið [email protected], merkt reiðkennari. Nánari upplýsingar um starfið veita Sveinn Ragnarsson deildarstjóri í síma 861 1128 og Mette Mannseth í síma 898 8876. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum