Hoppa yfir valmynd
9. júní 2020

Lögregluvarðstjóri – Lögreglustjórinn á Vestfjörðum.

Lögregluvarðstjóri – Lögreglustjórinn á Vestfjörðum.


Við embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum er laus til umsóknar staða varðstjóra með starfsstöð á Ísafirði.  Skipað verður í stöðuna frá 1. september 2020.


Helstu verkefni og ábyrgð 
Um verksvið og ábyrgð lögregluvarðstjóra er vísað til 10. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu, þar sem fram kemur m.a. að varðstjóri skuli sinna löggæslustörfum og rannsóknum mála.  Hann hefur með höndum vaktstjórn samkvæmt varðskrá og stjórn einstakra verkefna eða hóps lögreglumanna við almenn löggæslustörf.  Hann hefur og eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé fylgt.


Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar.  Umsækjandi skal hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 2 ár frá því að hann lauk prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi.

Við stöðuveitinguna verður litið til hæfni umsækjanda, starfsaldurs, þekkingar, menntunar, starfsreynslu og kyns.
Góð staðarþekking og stjórnunarreynsla er kostur. Færni í mannlegum samskiptum, skipulagshæfileikar, frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar.


Frekari upplýsingar um starfið
Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi  fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna.

Starfið er vaktavinna og starfshlutfall er 100%.
Umsóknum skal skilað til lögreglustjórans á Vestfjörðum, Hafnarstræti 1, 400 Ísafjörður eða senda á netfangið [email protected] og ferilskrá fylgi með.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.  Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.


Umsóknarfrestur er til og með 15. júlí 2020.


Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til þess að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn, í síma 444 0404 eða [email protected] eða Jónatans Guðbrandssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, í síma 444 0433 eða netfangið [email protected]



Lögreglustjórinn á Vestfjörðum,
Karl Ingi Vilbergsson.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum