Styrkir til grunnnáms í listdansi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki til dansskóla sem kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Umsókn um rekstrarstyrk þurfa að fylgja upplýsingar um nemendafjölda og skólagjöld. Nánari leiðbeiningar um frágang umsókna eru á umsóknareyðublaði á vef ráðuneytisins.
Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2018