Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2019

Framkvæmdastjóri

Framkvæmdastjóri

Íslenski dansflokkurinn óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa til að stýra daglegri starfsemi flokksins. Framkvæmdastjóri heyrir undir og vinnur náið með listrænum stjórnanda flokksins. Í boði er mjög áhugavert starf í lifandi og skapandi umhverfi.

Starfssvið:
Ábyrgð og umsjón með fjármálarekstri flokksins.
Samskipti við íslensk stjórnvöld sem og innlenda og erlenda samstarfsaðila.
Ábyrgð og umsjón með starfmannamálum. 
Samninga- og skýrslugerð.
Áætlanagerð og eftirfylgni áætlana sem og vinna við stefnumótun. 
Umsjón með erlendum og innlendum samstarfsverkefnum.
Fjáröflun og umsjón með umsóknum vegna styrkveitinga.

Menntunar- og hæfniskröfur: 
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Haldgóð reynsla af fjármálum, stjórnun og rekstri.
Reynsla af starfi á sviði menningar og lista mikill kostur.
Góð kunnátta í íslensku- og ensku sem og geta til að tjá sig í ræðu og riti. 
Leiðtogahæfileikar og sem og frumkvæði og metnaður í starfi. 
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samningatækni. 
Áhugi á menningu og listum.

Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Ragnheiður Dagsdóttir ([email protected]) og Ásdís Hannesdóttir ([email protected]) hjá Capacent ráðningum. 

Listrænn stjórnandi er forstöðumaður dansflokksins. Aðsetur Íslenska dansflokksins er í Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokkurinn hefur byggt upp nafn og viðurkenningu á alþjóðlegum vettvangi á undanförnum árum. Flokkurinn tekur reglulega þátt í margvíslegum samstarfsverkefnum, jafnt hér á landi sem á alþjóðlegum vettvangi. 

Íslenski dansflokkurinn er sjálfstæð ríkisstofnun. Hlutverk hans er að sýna listdans, stuðla að nýsköpun í innlendri listdanssmíði og vera vettvangur til eflingar og framþróunar danslistar á Íslandi. Flokkurinn leggur áherslu á að kynna íslenskum áhorfendum metnaðarfull verk og mikilvægustu höfunda í nútímadansi. Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu flokksins www.id.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum