Hoppa yfir valmynd
24. ágúst 2019

Sálfræðingur/ hlutastarf - Nýtt ráðgjafar- og stuðningsteymi langveikra barna

Sálfræðingur/ hlutastarf - Nýtt ráðgjafar- og stuðningsteymi langveikra barna

Sálfræðiþjónusta Barnaspítala Landspítala vill ráða til starfa metnaðarfullan og sjálfstæðan sálfræðing með góða samskiptafærni. Um er að ræða starf í nýju ráðgjafar- og stuðningsteymi fyrir langveik börn með umfangsmiklar þjónustuþarfir og fjölskyldur þeirra. 

Teyminu er ætlað að veita faglegan og félagslegan stuðning og utanumhald um upplýsingagjöf varðandi þjónustu við þessi börn. Starfið felur fyrst og fremst í sér að veita ráðgjöf og stuðning til langveikra barna og fjölskyldna þeirra. 

Hjá sálfræðiþjónustu Landspítala starfa 75 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og því unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til rannsóknarvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Virk þátttaka í fjölfaglegu samstarfi og framþróun teymisins
» Sálfræðilegt mat og stuðningur við börn og fjölskyldur
» Markvisst samstarf með fjölskyldum og aðstandendum samkvæmt stefnu kvenna- og barnasviðs
» Virk þátttaka í fræðslustarfi

Hæfnikröfur
» Áhugi og sveigjanleiki í starfi
» Afburða samskiptahæfni og jákvætt viðmót
» Þekking og reynsla af sálfræðilegri greiningu 
» Þekking á starfi með langveik börn og fjölskyldur; reynsla er æskileg
» Reynsla af áfallahjálp er kostur
» Menntun á sviði barnasálfræði er kostur 
» Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði 
» Hæfni til að vinna í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta 
» Íslenskt starfsleyfi sálfræðings

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum og eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um.

Starfið er laust nú þegar eða samkvæmt samkomulagi. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 10.09.2019

Nánari upplýsingar veitir
Berglind Guðmundsdóttir - [email protected] - 543 9292
Berglind Brynjólfsdóttir - [email protected] - 543 9213


Landspítali
Sálfræðiþjónusta H
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum