Nýir ferðastyrkir til að auka þátttöku nýrra hópa í menningarlífi Norðurlanda
Hægt er að sækja um styrk fyrir allt að tvo til ferða og uppihalds í allt að fimm daga í einhverju öðru ríki Norðurlandanna en því sem viðkomandi býr í. Ekki er um fastan umsóknarfrest að ræða.
Frjáls félagasamtök, listamenn og starfsfólk á sviði menningarmála með sjálfstæða starfsemi, menningarstofnanir og einkaaðilar innan menningarsviðsins í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð eða Álandseyjum geta sótt um ferðastyrkina.
Ferðastyrkirnir eru hluti af verkefninu Þátttaka nýrra hópa í menningarlífinu á Norðurlöndum sem er fjármagnað af menningarmálaráðuneyti Noregs og Norrænu ráðherranefndinni. Norska menningarráðið er í forsvari fyrir það verkefni sem stendur á tímabilinu 2017-2019.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu norska menningarráðsins.