Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2020

Sérfræðingur á sviði brunavarna

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar eftir öflugum sérfræðingi á sviði brunavarna til að taka þátt í uppbyggingu á nýju sviði eldvarna hjá stofnunni sem staðsett er á Sauðárkróki.


Um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun:
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var stofnuð 1. janúar árið 2020 við sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Sameiningin átti að stuðla að heildstæðri yfirsýn yfir húsnæðisog mannvirkjamál á einum stað ásamt því að efla stefnumótun og framkvæmd húsnæðis- og mannvirkjamála til hagsbóta fyrir almenning. Hlutverk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með gæðum, öryggi og heilnæmi. Að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og tryggja almenningi aðgengi að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði, hvort sem er til eignar eða leigu. Hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun starfar öflugur hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Stofnunin hefur aðsetur á tveimur stöðum, annars vegar í Borgartúni í Reykjavík, þar sem starfa rúmlega 80 starfsmenn og hins vegar á Sauðárkróki þar sem starfa rúmlega 20 starfsmenn. Starfskjör eru í samræmi við kjarasamning ríkisins og viðkomandi stéttarfélaga. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar má finna á: www.hms.is

Sérfræðingur á sviði brunavarna
Helstu verkefni: 
Skipulagning og samræming eftirlits með öryggisþáttum bygginga á sviði eldvarna
Umsjón með brunavarnaáætlunum sveitarfélaga
Gerð leiðbeininga og fræðsluefnis fyrir fagaðila
Ráðgjöf til stjórnvalda og hagsmunaaðila um eldvarnir
Úrvinnsla tölfræðiupplýsinga
Aðkoma að rannsóknum í kjölfar eldsvoða


Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun í verkfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi eða umtalsverð reynsla af brunahönnun og brunavörnum
Áhugi og þekking á málum sem snúa að brunavörnum
Forystuhæfileikar og drifkraftur
Frumkvæði og ríkir skipulagshæfileikar
Sjálfstæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

Um framtíðarstarf er að ræða og fullt starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem í stuttu máli er gerð grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.  
Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfinu.
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störfin. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar: Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) og Þórður S. Óskarsson ([email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 30.júlí 2020. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum