Hoppa yfir valmynd
17. apríl 2018

Dósent/lektor í lögfræði - Háskólinn á Akureyri - Akureyri - 201804/808



Staða dósents/lektors í lögfræði með áherslu á refsirétt og sakamálaréttarfar við félagsvísinda- og lagadeild hug- og félagsvísindasviðs

Laust er til umsóknar fullt starf dósents/lektors í lögfræði með góða þekkingu á grunn- og kjarnaþáttum lögfræði, meðal annars á sviði refsiréttar og sakamálaréttarfars. Umsækjandi þarf að geta sinnt fræðastörfum á þessum sviðum samhliða kennslu í grunn- og framhaldsnámi lögfræði og grunnnámi í lögreglufræði. Viðkomandi þarf að geta tekið virkan þátt í framkvæmd og þróun sveigjanlegs náms. Sérstaða laganáms við Háskólann á Akureyri felst í framsýnu, sveigjanlegu námi þar sem ekki er gerður greinarmunur á staðnámi og fjarnámi.

Megináherslan í lögfræði við Háskólann á Akureyri, bæði hvað varðar rannsóknir og nám, er á tvo þætti: a) íslenskt réttarkerfi og þróun þess, m.a. í alþjóðlegu samhengi, samanburðarréttur og réttarheimspeki, b) þjóðaréttur, málefni heimskautasvæða og Evrópusamvinna. Háskólinn á Akureyri býður þriggja ára 180 ECTS nám til BA gráðu í lögfræði og tveggja ára 120 ECTS meistarnám sem lýkur með ML gráðu. Að auki býður skólinn eftirfarandi námsleiðir á meistarastigi á ensku í heimskautarétti:
120 ECTS MA gráða í heimskautarétti
90 ECTS meistaragráða sem leiðir til LLM gráðu
60 ECTS diplómanáms í heimskautarétti
Einstök vottuð námskeið í heimskautarétti

Í lögfræði við HA eru nú um 90 stúdentar. Lögfræðin er hluti félagsvísinda- og lagadeildar skólans þar sem heildarfjöldi nemenda er um 600 og fjöldi akademískra starfsmanna 28.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf þann 1. janúar 2019, eða samkvæmt samkomulagi. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

Helstu verkefni eru rannsóknir og kennsla, bæði á grunnstigi og meistarastigi, stjórnsýslustörf, þróun sveigjanlegs náms og koma að uppbyggingu á doktorsnámi í lögfræði við deildina. Næsti yfirmaður er deildarformaður félagsvísinda- og lagadeildar. Starfstöð er á Akureyri.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsækjendur skulu hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla, sbr. 1. mgr. 16. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla.
Kennslu- og stjórnunarreynsla á háskólastigi er æskileg og fræðiskrif eru nauðsynleg.
Reynsla af lögfræðistörfum er æskileg.
Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
Umsækjandi þarf ennfremur að taka þátt í þróun og framkvæmd sveigjanlegs náms í lögfræði og uppbyggingu doktorsnáms.
Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.
Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir lögfræði við Háskólann á Akureyri.

Umsókn skal fylgja:
Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur ef til ráðningar kemur.
Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (þrjú til fimm rit). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Umsóknarfrestur er til 13. ágúst 2018. Umsókn ásamt fylgigögnum skal skila á ensku á skrifstofu rektors á netfangið [email protected].

Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglna nr. 387/2009 fyrir Háskólann á Akureyri og reglna nr. 258/2016 um störf dómnefndar og ráðningar akademískra starfsmanna við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Edward Huijbens formaður félagsvísinda- og lagadeildar, sími 460 8619, netfang: [email protected].

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum