Hoppa yfir valmynd
3. janúar 2019

Sérfræðingur á þróunarsviði

Sérfræðingur á þróunarsviði Byggðastofnunar

Byggðastofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á þróunarsviði stofnunarinnar. Í starfinu felst meðal annars að vinna við undirbúning og gerð byggðaáætlunar og vinna við greiningar á þróun byggðar á lands- og landshlutavísu með tilliti til byggðaáætlunar og sóknaráætlana landshluta. Starfsmaðurinn þarf að hafa áhuga á atvinnulífi, menningu og öðrum byggðamálum, stefnumótun og víðtæku samstarfi. Hann þarf að vera tilbúinn til að vinna að þeim fjölbreyttu þáttum byggðamála sem sinnt er á þróunarsviði í samstarfi við annað starfsfólk Byggðastofnunar, fólk utan hennar og með eigin frumkvæði og drifkrafti. Starfinu fylgja töluverð ferðalög.

Hæfniskröfur:
Háskólanám sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastýringu.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
Hæfileiki til að vinna sjálfstætt en jafnframt geta unnið í hóp og eiga auðvelt með að koma fyrir sig orði munnlega og skriflega.
Viðkomandi þarf að hafa vald á dönsku, norsku eða sænsku auk ensku.

Staðsetning starfsins er á Sauðárkróki. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 28. janúar n.k. og skulu umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu sendar til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki eða á netfangið: [email protected]

Nánari upplýsingar veitir Snorri Björn Sigurðsson, forstöðumaður þróunarsviðs, sími 455 5400 eða 895 8653.

Byggðastofnun hefur það að markmiði að vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir hæfa og metnaðarfulla starfsmenn, konur jafnt sem karla. 27 manns starfa hjá stofnuninni sem hefur á að skipa vel menntuðu fólki með fjölbreytta reynslu. Þar sem karlar eru í meirihluta starfsmanna á þróunarsviði eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið. 

Byggðastofnun mun á árinu 2020 taka í notkun nýtt húsnæði fyrir starfsemi sína þar sem aðbúnaður allur verður eins og best gerist.

Sauðárkrókur er höfuðstaður Skagafjarðar og einn öflugasti byggðakjarni landsbyggðarinnar. Þar er fjölbreytt og öflugt atvinnulíf. Fjölbreytt þjónusta er í boði, góðir skólar á öllum skólastigum, kröftugt menningarlíf og öflugt íþróttalíf. Boðið er upp á skóla á öllu skólastigum, frá leikskóla til háskóla. Íbúar Sauðárkróks eru um 2.600 talsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum