Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2020

Hjúkrunarnemar - Sauðárkrókur - Sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki, hjúkrunarnemar sumarafleysing

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir að ráða hjúkrunarnema í sumarafleysingar á heilsugæslu, hjúkrunar- og sjúkrasviði.
Ráðningartími frá 26. maí til 24. ágúst 2020 eða samkv. samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í teymisvinnu

Hæfnikröfur
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskipahæfileikar

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannþjónustu hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. 
Umsóknum skulu fylgja upplýsingar um nám og starfsferil.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir - [email protected] - 432 4220


Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Sauðárkrókur Hjúkrunardeild
Sauðárhæðir
550 Sauðárkrókur


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum