Framhaldsskólakennarar, stærðfræði og raungreinar
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir framhaldsskólakennurum
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða stærðfræðikennara í 50% starfshlutfall og raungreinakennara í 75-100% starfshlutfall.
Umsækjendur þurfa að hafa viðeigandi háskólamenntun og kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. Leitað er að kennurum sem hafa frumkvæði, eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og hafa áhuga á að taka þátt í þróunarstarfi í kennsluháttum og uppbyggingu náms í samræmi við lög um framhaldsskóla (nr. 92/2008).
Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Kennarasambands Íslands og skv. nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ kennir sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi og leggur áherslu á að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt, bæði hvað varðar listir og menningu, íþróttir og lýðheilsu og annað það sem einkennir mannlíf í Mosfellsbæ. Skólinn er framhaldsskóli með áfangasniði þar sem í boði eru stúdentsbrautir, framhaldsskólabrautir og sérnámsbraut. Helstu áherslupunktar í kennsluháttum skólans eru fjölbreyttar verkefnamiðaðar kennsluaðferðir og leiðsagnarnám.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. janúar 2019.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu berast Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara í netfangið [email protected] eða Guðrúnu Guðjónsdóttur aðstoðarskólameistara í netfangið [email protected]. Einnig er hægt að senda umsóknir í pósti: Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Háholti 35, 270 Mosfellsbær.
Vakin er athygli umsækjenda á að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII. kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.
Umsóknir þurfa að berast í síðasta lagi 3. desember 2018. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir skólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 864-9729 og aðstoðarskólameistari í netfangi [email protected] eða í síma 845-8829. Á vef skólans www.fmos.is má einnig finna ýmsar upplýsingar um skólann.
Skólameistari