Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2019

Lögreglumenn

Lögreglumenn, sex stöður – Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra

Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra auglýsir lausar til umsóknar sex stöður lögreglumanna, tvær með starfsstöð á Akureyri, tvær með starfsstöð á Húsavík, eina með starfstöð á Dalvík og eina með starfsstöð á Þórshöfn. 

Helstu verkefni og ábyrgð:  Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigum við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu. 

Hæfnikröfur: Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómanámi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar. Þó er heimilt að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) æskileg sem og önnur almenn tölvukunnátta, einnig er tungumálakunnátta kostur. Nauðsynlegt er að viðkomandi búi yfir skipulagshæfni og vandvirkni í vinnubrögðum, sýni frumkvæði og sjálfstæði í starfi og hafi yfir að búa færni í mannlegum samskiptum og hæfni til að starfa í hóp. 

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem rýrt getur það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta.  Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá eða málaskrá lögreglu, sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um skipun hefur verið tekin. Umsóknum skal skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum eða á lögregluvefnum www.logreglan.is, undir liðnum eyðublöð. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, ásamt ljósriti af prófskírteinum og öðrum gögnum skal skilað á netfangið [email protected] eða til Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra, Þórunnarstræti 138, 600 Akureyri. 

Umsóknarfrestur er til og með 27. maí 2019. 

Ráðningarkjör samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landsambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100% og starfið vaktavinna. Stöður lögreglumanna með starfsstöð á Dalvík, Húsavík og Þórshöfn eru með bakvaktaskyldu, þannig að aðsetur á  Dalvík, Húsavík og Þórshöfn á meðan á vaktatörn stendur er skilyrði. 

Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri skipi í stöðurnar, til fimm ára, frá og með 1. júlí 2019.

Í ljósi ríkjandi kynjahlutfalls innan lögreglu og jafnréttisáætlunar lögreglunnar eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um. 

Athygli er vakin á að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar veita Kristján Kristjánsson, yfirlögregluþjónn og Jóhannes Sigfússon, aðstoðaryfirlögregluþjónn, í síma 444-2800. 


Akureyri, 29. apríl 2019.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum