Hoppa yfir valmynd
18. maí 2019

Yfirlyfjafræðingur

Yfirlyfjafræðingur

Starf yfirlyfjafræðings á Landspítala er laust til umsóknar. Yfirlyfjafræðingur ber ábyrgð á daglegum rekstri sjúkrahúsapóteks og vinnur náið með deildarstjóra lyfjaþjónustu og öðrum stjórnendum Landspítala. Við óskum eftir framsæknum einstaklingi með framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfileika. 

Sjúkrahúsapótek hefur umsjón með og ber ábyrgð á öflun og varðveislu lyfja og hefur eftirlit með notkun þeirra á spítalanum. Sjúkrahúsapótekið starfrækir líka afgreiðsluapótek sem þjónustar sjúklinga sem útskrifast frá spítalanum sem og sjúklinga sem fá þjónustu á dag- og göngudeildum. Innan sjúkrahúsapóteks er einnig starfrækt lyfjablöndunareining. Í lyfjaþjónustu starfa um 60 manns, að stærstum hluta lyfjafræðingar og lyfjatæknar. 

Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2019 eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er í starfið til 5 ára, sbr. 9. gr. laga nr. 40/2007 og stefnu Landspítala í ráðningum stjórnenda. Lyfjaþjónustan tilheyrir aðgerðasviði, en næsti yfirmaður yfirlyfjafræðings er deildarstjóri lyfjaþjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Ber ábyrgð á innri starfsemi sjúkrahúsapóteks, framleiðslu og afhendingu lyfja 
» Þátttaka í stefnumótun lyfjaþjónustu á Landspítala
» Ber ábyrgð á lyfjalagerum Landspítala 
» Þróar og vinnur samkvæmt þjónustuviðmiðum starfseminnar og tryggir viðskiptavinum örugga lyfjaþjónustu
» Ber ábyrgð á gæðakerfi innan sjúkrahúsapóteks 
» Vinnur að þróun sjúkrahúsapóteks í nýjum meðferðarkjarna
» Vinnur að þróun upplýsingakerfa sem styðja við örugga og skilvirka lyfjaþjónustu
» Ber ábyrgð á starfsmannamálum og faglegu starfi í sjúkrahúsapóteki

Hæfnikröfur
» Háskólapróf í lyfjafræði er skilyrði
» Þekking og reynsla af lyfjageiranum og löggjöf varðandi lyfjamál á Íslandi
» Þekking og reynsla af ferlastýringu, stöðugum umbótum og breytingastjórnun
» Reynsla af stjórnun og rekstri
» Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að leiða ólíka hópa
» Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Lyfjafræðingafélag Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. 

Umsókn fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, kennslu og vísindavinnu. Umsókn fylgi einnig 1-2 bls. kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið. 
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ekki síður en innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2019

Nánari upplýsingar veitir
Vigdís Hallgrímsdóttir - [email protected] - 825 3502
Elfa Hrönn Guðmundsdóttir - [email protected] - 691 7823


Landspítali
Sjúkrahúsapótek
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum