Hoppa yfir valmynd
7. mars 2019

Sérfræðingur í íslensku sem öðru tungumáli

Sérfræðingur í íslensku sem öðru tungumáli 

Menntamálastofnun leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi starfsmanni með mikla þekkingu og áhuga á kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál (ÍSAT). 
Hlutverk sérfræðingsins er að sinna ráðgjöf vegna leik- og grunnskólanemenda með íslensku sem annað tungumál í sveitarfélögum öðrum en Reykjavík.  Meðal verkefna er að veita almennar leiðbeiningar til skóla og ráðgjöf um máltöku,  kennsluhætti, námsefni, námsmat, móttöku og rannsóknir sem tengjast sértækum þörfum ÍSAT nemenda. 

Gert er ráð fyrir að verkefni er varða íslensku sem annað tungumál nemi 50% starfshlutfalli en stofnunin leitar að starfsmanni í 100% stöðu. Viðkomandi sérfræðingur þarf því að geta tekið að sér önnur verkefni s.s. á sviði ytra mats, greininga, framhaldskólamála, prófagerðar eða  námsefnisgerðar.

Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. 

Menntunar- og hæfnikröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. 
- Þekking og reynsla af grunnskólastarfi skilyrði.
- Þekking og reynsla af kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál skilyrði.
- Þekking og reynsla af framhalds- eða leikskólaskólastarfi æskileg.
- Þekking á gæðastarfi og greiningum á skólakerfinu æskileg.
- Framúrskarandi hæfni í íslensku og meðferð ritaðs máls og góð þekking í ensku.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Færni í að vinna í teymum og að fjölbreyttum verkefnum.
- Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund. 

Starfið felur í sér mikil samskipti við aðila bæði innan og utan stofnunarinnar og starfsmaður þarf að vera reiðubúinn til að sinna ýmsum verkefnum er varða kennslu og ráðgjöf vegna nemenda með íslensku sem annað mál.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. 

Umsókn sendist á [email protected] merkt: Sérfræðingur í annarsmáls fræðum 

Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kolfinna Jóhannesdóttir, sviðsstjóri, í s. 514-7500, netfang: [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 25. mars 2019.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum