Vefrit dóms- og kirkjumálaráðuneytisins 1. tbl. 2009
Út er komið 1. tbl. 2009 af vefriti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Þar er fjallað um veitingu ríkisfangs á árinu 2008. Þá fengu alls 979 einstaklingar íslenskt ríkisfang, þar af voru 874 sem veittur var ríkisborgararéttur á grundvelli 7. gr. í lögum um íslenskan ríkisborgararétt og 31 sem Alþingi veitti ríkisborgararétt samkvæmt 6. gr. sömu laga. 74 fengu ríkisborgararétt samkvæmt öðrum greinum laganna.
Vefrit dóms- og kirkjumálaráðuneytisins 1. tbl. 2009 (pdf-skjal)