Hoppa yfir valmynd
14. desember 2019

Náttúrufræðingur

Náttúrufræðingur

Náttúrufræðingur óskast til starfa við sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Upphaf starfs er samkvæmt samkomulagi en æskilegt að umsækjandi geti hafið starf sem fyrst.

Á deildinni, þar sem um 65 manns starfa, er veitt fjölbreytt og umfangsmikil þjónusta allan sólarhringinn við greiningar sýkinga af völdum baktería, veira, sveppa og sníkjudýra, auk rannsókna, ráðgjafar og kennslu heilbrigðisstétta í sýkla- og veirufræði.

Góður starfsandi er ríkjandi og möguleiki á starfsþróun í starfi. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum og veitum góða aðlögun. Velkomið að kíkja í heimsókn, áhugasamir hafið samband við Ólafíu Svandísi, deildarstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna við þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum
» Sérhæfð verkefni, eftir atvikum, sem heyra undir starfsemi deildarinnar
» Virk þátttaka í gæðastarfi
» Vinna við upplýsingakerfi deildarinnar
» Stuðla að góðri þjónustu

Hæfnikröfur
» Próf í líffræði eða skyldum greinum
» Íslenskt starfsleyfi í heilbrigðiþjónustu og/eða framhaldsmenntun kostur
» Þekking, sérhæfing og reynsla af rannsóknastofuvinnu kostur s.s. vinna við veirur, bakteríur, PCR og/ eða ELISA .
» Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
» Hæfni til að starfa í teymi
» Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
» Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá, ásamt afritum af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2020

Nánari upplýsingar veitir
Ólafía Svandís Grétarsdóttir - [email protected] - 825 9555


Landspítali
Sýkla-og veirufræðideild, Barónsstíg
Hringbraut
101 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum