Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2018

Sérfræðingur í fráveitumálum

Sérfræðingur í fráveitumálum 
 
Hjá Umhverfisstofnun er laust til umsóknar starf sérfræðings í fráveitumálum á sviði náttúru, hafs og vatns. Í boði er krefjandi starf í frjóu umhverfi sérfræðinga þar sem áhersla er lögð á framsýni, samstarf og árangur í þverfaglegri teymisvinnu. 

Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnsýsla fráveitumála sem fellur innan starfssviðs Umhverfisstofnunar samkvæmt lögum og reglugerðum.
- Verkefni sem falla innan verksviðs Umhverfisstofnunar og tengjast meðhöndlun seyru og vörnum gegn mengun vatns. 
- Verkefni sem tengjast stjórn vatnamála. 
- Gerð leiðbeininga, umsagna, gagnaskil og samstarf við hagsmunaaðila.
- Erlent og innlent samstarf sem tengist stjórn vatnamála og fráveitumálum

Hæfnikröfur
Gerð er krafa um háskólapróf á meistarastigi í verkfræði- eða raunvísindum sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði, tæknifræði, líffræði eða umhverfis- og auðlindafræði. Einnig er gerð krafa um kunnáttu í íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.

Að öðru leyti verða eftirfarandi kröfur um þekkingu, reynslu og hæfni hafðar til viðmiðunar við val á starfsmanni:
- Þekking á umhverfismálum, vatnalíffræði og örverufræði
- Þekking á opinberri stjórnsýslu 
- Reynsla af miðlun upplýsinga og fræðslu til mismunandi hópa
- Samstarfshæfni og sveigjanleiki í samskipum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Bæði konur og karlar hvött til að sækja um starfið. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Föst starfsaðstaða getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum; allt eftir búsetu umsækjenda. 
Gert er ráð fyrir að gagnkvæmur reynslutími sé sex mánuðir við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.12.2018

Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Arnar Jónsson - [email protected] - 5912000
Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir - [email protected] - 5912000

Ust Svið náttúru Haf- og vatnsteymi
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum