Hoppa yfir valmynd
20. maí 2019

Sérfræðingur á skrifstofu barna- og fjölskyldumála

Sérfræðingur á skrifstofu barna- og fjölskyldumála

Félagsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í 100% stöðu á skrifstofu barna- og fjölskyldumála.  Skrifstofan fer með m.a. með málefni félagsþjónustu og barnaverndar, málefni fatlaðra, aldraðra og flóttamanna. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og reynslu af málefnum barna og félagsþjónustu og er tilbúinn að takast á við krefjandi, áhugaverð og fjölbreytt verkefni þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.

Hæfnikröfur
Þekking og reynsla af málefnum barna, félagsþjónustu og barnavernd.
Menntun sem nýtist í starfi.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Skipulagshæfni.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Sveigjanleiki og samstarfshæfni.
Gott vald á íslensku í ræðu og riti. 
Góð kunnátta í ensku. 
Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg. 
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg.
Þekking og reynsla af öðrum málefnasviðum skrifstofunnar kostur. 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá, starfsheiti og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur fyrir starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. 

Heimasíða félagsmálaráðuneytisins

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2019

Nánari upplýsingar veitir
Erna Kristín Blöndal - [email protected] - 545-8100


Félagsmálaráðuneyti, aðalskrifstofa
Skrifstofa barna- og fjölskyldumála
Skógarhlíð 6
105 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum