Hoppa yfir valmynd
1. mars 2018

Lektor í heimspeki - Háskóli Íslands, Sagnfræði- og heimspekideild - Reykjavík - 201803/466

 

Lektor í  heimspeki - Sagnfræði- og heimspekideild - Hugvísindasvið Háskóla Íslands – Reykjavík

Laust er til umsóknar fullt starf lektors í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Lektornum er ætlað að sinna kennslu í rökfræði og tengdum greinum. Rannsóknarsvið og rannsóknarreynsla umsækjenda skal vera innan rökfræði, þekkingarfræði, málspeki, vísindaheimspeki eða frumspeki. 

Umsækjendur skulu hafa lokið doktorsprófi í heimspeki. Reynsla af kennslu í rökfræði eða skyldum greinum er kostur. Leitað er að einstaklingi sem er lipur í mannlegum samskiptum, hefur frumkvæði og skipulagshæfileika og getur unnið sjálfstætt.

Ráðið verður í starfið tímabundið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Gert er ráð fyrir að upphaf ráðningar verði 1. júlí 2018, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda er um ráðninguna fjalla. 

Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og fræðasviðs. 

Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2018.

Sótt er um starfið á vefsíðu Háskóla Íslands undir laus störf. 

Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið og greinargerð um áform ef til ráðningar kemur. Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn, eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Enn fremur er ætlast til þess að umsækjendur láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín, eftir því sem við á. Umsókn og umsóknargögn sem ekki er skilað rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. 

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Þorsteinsson námsbrautarformaður í síma 525 4358, netfang [email protected], og Ásdís Guðmundsdóttir kennslustjóri í síma 525 4348, netfang [email protected].

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum