Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2020

Skurðhjúkrunarfræðingur - Skurðstofur Fossvogi

Skurðhjúkrunarfræðingur - Skurðstofur Fossvogi

Skurðhjúkrunarfræðingur óskast til starfa á skurðstofur í Fossvogi. Starfið er laust frá 1. mars 2020 eða eftir nánari samkomulagi. Í boði er áhugavert starf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er í dagvinnu, stöku kvöldvaktir auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Einnig kemur til greina að ráða í dagvinnu eingöngu. 

Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 manns, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofumenn og sérhæfðir starfsmenn við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi. Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.

Helstu verkefni og ábyrgð
» Einstaklingshæfð hjúkrun við undirbúning, framkvæmd og skil í skurðaðgerðum samkvæmt skipulagi deildar
» Ákveður, skráir og veitir hjúkrunarmeðferð í samráði við þarfir skjólstæðinga og ber ábyrgð á meðferð, samkvæmt starfslýsingu og vinnureglum deildar

Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Sérnám í skurðhjúkrun er skilyrði
» Faglegur metnaður
» Góð samskiptahæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
» Sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem hátt í 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Guðbjörn Skúlason - [email protected] - 824 5118


Landspítali
Skurðstofur F - rekstur
Fossvogi
108 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum