Hoppa yfir valmynd
18. mars 2019

Gæðastjóri

Gæðastjóri - Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða gæðastjóra til fimm ára frá 1. september 2019.

Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjórn við innleiðingu gæðaverkefna í samráði við framkvæmdastjórn HSA og samkvæmt stefnu HSA.
Innleiðing nýjunga og straumlínulögun í sjúkraskrárkerfinu Sögu.
Uppfærsla gæðaskjala í samráði við fagstjórnendur og mannauðssvið.
Gæðaeftirlit og þróun, gerð og úrvinnsla kannana.

Hæfnikröfur
Háskólapróf í heilbrigðisvísindum sem nýtist í starfi ásamt framhaldsnámi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af stjórnun verkefna.
Þekking á sjúkraskrárkerfi Sögu.
Þekking og hæfni í framsetningu á talnagögnum og upplýsingum.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði.
Íslenskukunnátta áskilin, sem og ökuréttindi
Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum frá einstaklingum sem ekki teljast uppfylla framangreind skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. 

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 10.04.2019

Nánari upplýsingar veitir
Guðjón Hauksson - [email protected] - 470-3051 & 774-5030
Emil Sigurjónsson - [email protected] - 470-3053 & 895-2488

Heilbrigðisstofnun Austurlands
Stjórn og skrifstofa
Lagarás 22
700 Egilsstaðir


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum