Hoppa yfir valmynd
9. desember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Embætti héraðsdómara laust til setningar

Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara við héraðsdóm Reykjavíkur til setningar frá og með 1. janúar 2017 til og með 31. maí 2017. Ráðherra setur í embættið að fenginni ábendingu dómstólaráðs, sbr. 2. mgr. 20. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Áskilið er að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) núverandi starf, 2) menntun og framhaldsmenntun, 3) reynslu af dómstörfum, 4) reynslu af lögmannsstörfum, 5) reynslu af stjórnsýslustörfum, 6) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 7) reynslu af stjórnun, 8) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 9) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 10) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 11) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi yfirmenn/samstarfsmenn sem geta veitt bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 12) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta fyrir störf héraðsdómara.

Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum, er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir.

Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík og í pósthólfið [email protected], eigi síðar en 27. desember 2016.

Innanríkisráðuneytinu,

9. desember 2016.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum