Hoppa yfir valmynd
14. maí 2019

Varðstjóri - Selfoss

Varðstjóri - Lögreglan á Suðurlandi – Selfoss

Við embætti lögreglustjórans á Suðurlandi er laus til umsóknar staða varðstjóra, með starfsstöð á Selfossi   sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu.

Lögreglustjóri skipar í stöðurnar frá og með 1. júlí 2019

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní nk. og skal umsóknum skilað til lögreglustjórans á Suðurlandi, Hlíðarvegi 16, 860 Hvolsvöllur eða sendar á netfangið [email protected]

Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Umsækjendur um stöðu varðstjóra þurfa að hafa starfað í amk 2 ár í lögreglu. Með umsókn sinni heimilar umsækjandi lögreglustjóra að staðreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði e-liðar 2. mgr. lögreglulaga nr. 90/1996 með öflun upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.

Ráðningarkjör eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100%. Starfið er vaktavinna.  Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er skilyrði. Færni í mannlegum samskiptum, góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa og leiða hóp einstaklinga í verkefnum  eru nauðsynlegir eiginleikar. Góð staðarþekking er kostur. 

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn í síma 444 2000 eða á netfangið [email protected]

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum