Hoppa yfir valmynd
9. janúar 2020

Sérfræðingur í myndgreiningalækningum

Sérfræðingur í myndgreiningalækningum

Lausar eru til umsókna tvær stöður sérfræðinga í myndgreiningalækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri. Myndgreiningadeildin veitir fjölþætta þjónustu og nær þjónustusvæðið til Norður- og Austurlands. 
Deildin er mjög vel tækjum búin. Auk almennra röntgentækja eru á deildinni tölvusneiðmyndatæki (CT) og segulómtæki (MR) auk þess sem gerðar eru brjóstamyndatökur (hópskoðanir), beinþéttnimælingar og ómskoðanir á deildinni.
Næsti yfirmaður er forstöðulæknir myndgreiningalækninga.
Staðan veitist frá 1. apríl 2020 eða eftir nánara samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða klíníska stöðu sem fylgir vaktaskylda og þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta. 
Stöðuhlutfall er samkomulagsatriði en æskilegast að viðkomandi væri í fullri stöðu.

Hæfnikröfur
Umsækjendur skulu hafa íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í myndgreiningalækningum. 
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæra vinnubragða. 

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlega upplýsingar um nám og starfsferil ásamt með upplýsingum um fræðilegar rannsóknir, rit- og kennslustörf og staðfest afrit af fylgigögnum. 
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: Öryggi samvinna framsækni
Við ráðningar í störf við SAk er tekið er mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins sem er reyklaus vinnustaður.
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2020

Nánari upplýsingar veitir
Orri Einarsson - [email protected] - 4630100
Hildigunnur Svavarsdóttir - [email protected] - 4630100


Sjúkrahúsið á Akureyri
Myndgreiningalækningar
Eyrarlandsvegi
600 Akureyri


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum