Hoppa yfir valmynd
15. nóvember 2018

Skjalastjóri


Skjalastjóri Menntamálastofnunar 

Menntamálastofnun leitar að jákvæðum, metnaðarfullum og sjálfstæðum skjalastjóra með yfirgripsmikla þekkingu og brennandi áhuga á skjala- og gæðamálum. 

Hlutverk skjalastjóra er stýra og þróa áfram skjalastjórnun stofnunarinnar og vera leiðandi í gæðastjórnun. Skjalastjóri ber ábyrgð og hefur umsjón með þróun og eftirfylgni skjalastefnu og verklags við rafræna skjalastjórnun, hefur umsjón með rekstri málaskrárkerfis og sér um ferli fyrir skjala- og gæðastjórnun. Skjalastjóri heldur utan um skráningu tölfræðilegra gagna úr málaskrárkerfinu, er ábyrgur fyrir upplýsingaflæði um innleiðingu og virkni málaskrárkerfisins og sér um þjálfun starfsfólks í skjalastjórnun. Skjalastjóri er talsmaður skjala- og gæðastjórnunar innan sem utan veggja stofnunarinnar. Starfið kallar á mikið frumkvæði, góða samskiptafærni, hæfni til að starfa í teymi og reynslu af verkefnastjórnun.

Um er að ræða 100% starf og laun eru greidd samkvæmt samningum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags. Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Menntunar- og hæfnikröfur:
Háskólamenntun á sviði skjalastjórnunar s.s. bókasafns- og upplýsingafræði eða gæða- og verkefnastjórnun
Þekking og reynsla af skjalastjórnun og helstu upplýsingakerfum
Þekking og reynsla af gæðastöðlum og reynsla af því að setja upp verklagsreglur og vinnulýsingar
Góð tækni- og tölvukunnátta
Góð íslensku og enskukunnátta
Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði, góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund

Starfið felur í sér mikil samskipti við aðila bæði innan og utan stofnunarinnar og starfsmaður þarf að vera reiðubúinn til að sinna öðrum þeim störfum sem kunna að þarfnast úrlausnar hjá stofnuninni.

Umsókn um starfið skal fylgja skrá yfir menntun og starfsferil, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið. 

Umsókn sendist á [email protected] merkt: Skjalastjóri Menntamálastofnunar. Öllum umsóknum verður svarað.  

Nánari upplýsingar veitir Sveinbjörn Yngvi Gestsson sviðsstjóri þjónustusviðs,  í síma 514-7500, netfang: [email protected]

Umsóknafrestur er til og með 3. desember 2018.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum