Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2019

Móttökuritari Göngudeild sóttvarna

Móttökuritari Göngudeild sóttvarna 

Göngudeild sóttvarna auglýsir laust til umsóknar 100% ótímabundið starf móttökuritara. Vinnutími er milli 8:20 og 16:15 á daginn. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 2.janúar 2020 eða eftir nánara samkomulagi.

Megin starfsemi Göngudeildar sóttvarna eru berklavarnir, ferðamannaheilsuvernd og heilbrigðisskoðun innflytjenda frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, bókunum, móttöku skjólstæðinga, panta túlka, uppgjöri og öðru sem til fellur
- Sjá um daglegan rekstur móttökunnar í samráði við þjónustufulltrúa
- Umsjón sjúkraskrágagna í samvinnu við annað starfsfólk
- Aðstoða við undirbúning kennslu, þróunarverkefna, rannsóknarverkefna og önnur sambærileg verkefni í samvinnu við annað starfsfólk
- Leysa þjónustufulltrúa af í sumarleyfum eða veikindum
- Önnur tilfallandi verkefni

Hæfnikröfur
- Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
- Reynsla af móttökuritarastarfi er æskileg
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg 
- Reynsla að taka á móti og vinna með fólki að ólíkum uppruna er æskilegt 
- Góðri almenn tölvukunnátta nauðsynleg
- Reynsla af Sögukerfi er æskileg
- Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.12.2019

Nánari upplýsingar veitir
Kai Blöndal - [email protected] - 585-1300


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Göngudeild sóttvarna
Þönglabakka 6

109 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum