Hoppa yfir valmynd
24. janúar 2020

Yfirlæknir Geðheilsuteymi HH suður

Yfirlæknir Geðheilsuteymi HH suður

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir yfirlækni við Geðheilsuteymi suður. Teymið er nýtt þverfaglegt geðheilsuteymi ætlað íbúum í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Um er að ræða spennandi og fjölbreytt framtíðarstarf þar sem viðkomandi ber ábyrgð á faglegri uppbyggingu teymisins ásamt teymisstjóra. Starfshlutfall er 80-100%. Við Geðheilsuteymið munu starfa geðlæknir, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, fjölskyldufræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, íþróttafræðingur, þjónustufulltrúi og notendafulltrúar.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í að byggja upp nýtt teymi sem sinnir samfélagsgeðþjónustu, þá er þetta spennandi tækifæri.

Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna í þverfaglegu geðheilsuteymi 
- Viðtöl á starfsstöð eða heimavitjanir
- Yfirumsjón með geðlæknis- og geðlyfjameðferð notenda teymis
- Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna teymis
- Fræðsla til notenda og aðstandenda
- Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni
- Samvinna við starfsfólk heilsugæslustöðva, þjónustustöðva, geðsviðs Landspítala og annarra stofnana
- Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna heilsugæslustöðva á svæðinu

Hæfnikröfur
- Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum
- Reynsla af uppbyggingu og þróun nýrrar þjónustu er kostur
- Brennandi áhugi á uppbyggingu á nýju meðferðarúrræði
- Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
- Breið þekking og reynsla í geðlækningum
- Reynsla af vinnu í geðendurhæfingu er kostur
- Reynsla af rannsóknum og kennslu er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni skilyrði
- Frumkvæði í starfi og góðir skipulagshæfileikar
- Framsýni og metnaður í starfi
- Jákvæðni og sveigjanleiki 
- Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Jafnframt skal fylla út eyðublaðið "Umsókn um læknisstöðu" og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni. Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar hjá Embætti landlæknis.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. 
 
Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Íris Dögg Harðardóttir - [email protected] - 821-2161
Sigríður Dóra Magnúsdóttir - [email protected] - 513-5015


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Geðheilsuteymi suður
Álfabakki 16

109 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið
 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum