Kennari í stærðfræði
Laus kennsla í stærðfræði við Menntaskólann við Sund
Við Menntaskólann við Sund er laus til umsóknar kennsla í stærðfræði næsta skólaár. Um er að ræða fullt starf. Verið er að leita að hæfum og góðum framhaldsskólakennara sem er tilbúinn að starfa í framsæknum skóla með þriggja anna kerfi þar sem áhersla er á að byggja upp námskraft nemenda. Áhersla er á verkefnatengt nám, virkni, ábyrgð og hæfni nemandans. Góð fagmenntun er skilyrði.
Ráðning í stöðuna er frá 1.ágúst 2019 og eru starfskjör samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands og fjármálaráðherra og stofnanasamningi skólans og félagsmanna í KÍ. Ekki þarf að sækja um á sérstökum eyðublöðum en upplýsingar um menntun og starfsferil þurfa að fylgja umsókn sem og afrit af vottorðum um nám og kennsluréttindi.
Umsóknir skal senda á Menntaskólann við Sund, Gnoðarvogi 43, 104-Reykjavík eða á netfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5807300. Umsóknir þurfa að berast skólanum ekki síðar en mánudaginn 3. júní næstkomandi.
Rektor