Hoppa yfir valmynd
21. mars 2018

Náms- og starfsráðgjafi - Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - Reykjavík - 201803/622

 

FB vantar náms- og starfsráðgjafa næsta skólaár
 

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir að ráða náms- og starfsráðgjafa til eins árs skólaárið 2018-19 vegna afleysinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
Náms- og starfsráðgjafar standa vörð um velferð nemenda, hjálpa þeim að finna lausnir á persónulegum málum sem hindra þá í námi, veita ráðgjöf og upplýsingar varðandi náms- og starfsval, svo og ýmiss konar stuðning til að auka námsárangur. Náms- og starfsráðgjafi starfar á sviði nemendaþjónustu og á í reglubundnum samskiptum við kennara og annað starfsfólk skólans.

Hæfnikröfur
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur rétt til að kalla sig náms- og starfsráðgjafi skv. lögum nr. 63/2006. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði í starfi, áhuga og áreiðanleika.
Við ráðningu skulu liggja fyrir afrit prófskírteina, staðfesting á starfsréttindum náms- og starfsráðgjafa og sakavottorð.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður verknám, listnám og bóknám til lokaprófs úr framhaldsskóla. Kennt er í dagskóla, kvöldskóla og sumarskóla. Á heimasíðunni, www.fb.is er að finna upplýsingar um stefnu skólans. Sýn okkar er að við eflum einstaklinga til þess að skapa framtíðina. Gildi skólans eru virðing, fjölbreytni og sköpunarkraftur. Helsta stefnumið skólans er að sérhver nemandi nái árangri í námi sínu, en við hlúum jafnframt að athafnagleði, samvinnu og ábyrgum lífsmáta nemenda og starfsfólks.

Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum ráðningarkerfi Oracle, sjá tengil hér að neðan. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Haldið verður eftir afriti af umsóknargögnum í samræmi við ákvæði laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.04.2018

Nánari upplýsingar veitir
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari

Smelltu hér til að sækja um starfið

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum