Hoppa yfir valmynd
7. mars 2019

Lögfræðingur/sérfræðingur á sviði útlendingamála

Lögfræðingur/sérfræðingur á sviði útlendingamála

Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir reynslumiklum lögfræðingi/sérfræðingi til starfa á skrifstofu réttinda einstaklinga. Skrifstofa réttinda einstaklinga annast stefnumótun, frumvarpasmíði, mótun reglugerða og reglna og ber ábyrgð á stjórnsýslu í þeim málaflokkum sem undir skrifstofuna heyra. Skrifstofan annast jafnframt almennt stjórnsýslueftirlit með stjórnsýslustofnunum sem undir skrifstofuna heyra.

Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að einstaklingi til að sinna verkefnum tengdum vinnu við málefni útlendinga. Í starfinu felst vinna við stefnumótun í málefnum útlendinga og greiningarvinna, þ. á m. að fylgjast með breytingum og þróun í málefnum flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í starfinu felst einnig vinna við gerð frumvarpa, reglugerða og reglna og samskipti og samstarf við stofnanir og aðra aðila sem koma að málaflokknum innlenda sem erlenda. Þá felast einnig í starfinu ýmis önnur tilfallandi verkefni á málefnasviði skrifstofunnar.

Menntunar og hæfniskröfur
Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla
Þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar kostur
Þekking og reynsla af málefnasviði ráðuneytisins, sérstaklega af málefnum útlendinga er kostur
Þekking eða reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun kostur
Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Góð kunnátta á einu Norðurlandamáli er kostur
Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Um er að ræða fullt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi og er umsóknarfrestur til 25. mars nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri í síma 545 9000

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.03.2019

Nánari upplýsingar veitir
Berglind Bára Sigurjónsdóttir - [email protected] - 545-9000

Dómsmálaráðuneyti (06101)
Sölvhólsgata 7
150 Reykjavík


Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum