Hoppa yfir valmynd
18. júní 2020

Kennari í stærðfræði við FB

Kennari í stærðfræði við FB


Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir að ráða stærðfræðikennara á haustönn 2020. 
Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2020.


Helstu verkefni og ábyrgð
Kennari ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi, námsmati og faglegu samstarfi ásamt gerð kennsluáætlana og prófa. Skólinn notar Innu skóla- og kennslukerfi og Moodle dreifnámskerfi sem kennari þarf að vera tilbúinn til að vinna með.

Hæfnikröfur
Umsækjendur þurfa að hafa háskólapróf í stærðfræði eða annað sambærilegt háskólapróf sem nýtist í starfi. Áhersla er lögð á kennsluhæfni og samskiptahæfileika í faglegu og þverfaglegu samstarfi. Einnig er lögð áhersla á frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, áhuga og áreiðanleika.


Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
FB stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um laus störf.
Við ráðningu skulu liggja fyrir afrit prófskírteina, leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019 og sakavottorð. 

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður verknám, listnám og bóknám til lokaprófs úr framhaldsskóla. Á heimasíðunni, www.fb.is, er að finna upplýsingar um stefnu skólans. Sýn okkar er að við eflum einstaklinga til þess að skapa framtíðina. Gildi skólans eru virðing, fjölbreytni og sköpunarkraftur. Helsta stefnumið skólans er að sérhver nemandi nái árangri í námi sínu en við hlúum jafnframt að athafnagleði, samvinnu og ábyrgum lífsmáta nemenda og starfsfólks.


Umsóknir skulu berast á rafrænu formi í gegnum ráðningarkerfi Oracle, sjá tengil hér að neðan. Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verði tekin. Haldið verður eftir afriti af umsóknargögnum í samræmi við ákvæði laga um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.


Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2020


Nánari upplýsingar veitir
Elvar Jónsson - [email protected] - 869 5494



Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Austurbergi 5
111 Reykjavík


Smellið hér til að sækja um starf

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum