Hoppa yfir valmynd
14. mars 2019

Hagfræðingur

 
Hagfræðingur

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða hagfræðing á svið hagfræði og peningastefnu bankans. Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík.
Hagfræði og peningastefna annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræði og peningastefna hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungsritsins Peningamála og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin. 

Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður.
- Vinna í tengslum við greiningu og skrif í Peningamál.
- Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og þjóðhagfræði.
- Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa bankans.
- Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðasviðum Seðlabankans.

Hæfnikröfur
- Háskólapróf í hagfræði.
- Gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku.
- Góð hæfni í að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt.
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í hópi.
- Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og metnaður í starfi.
- Jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar.

Frekari upplýsingar um starfið
Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.04.2019

Nánari upplýsingar veitir
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu, netfang: [email protected] og Íris Guðrún Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri, netfang: [email protected].

Smelltu hér til að sækja um starfið

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum