Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2020

Teymisstjóri í heimahjúkrun

Teymisstjóri í heimahjúkrun

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir hjúkrunarfræðingi í starf teymisstjóra í heimahjúkrun sem staðsett er í Kópavogi. Heimahjúkrun HH sér um hjúkrun í heimahúsum fyrir íbúa í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi. 
Um er að ræða ótímabundið 100% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst 2020 eða eftir nánara samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð
Teymisstjóri í heimahjúkrun ber ábyrgð á hjúkrun ákveðins hóps skjólstæðinga. Starfssvið hans er stýring teymis sem veitir víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hann ber ábyrgð á gerð þjónustuplans viðkomandi teymis og samábyrgð með öðrum teymum á heildarþjónustu heimahjúkrunar. Náið samstarf er við móttökuteymi varðandi umfang innskrifta.

Teymisstjóri styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra sem og samstarfsfólk. Hann skipuleggur og sér um verkstjórn og framkvæmd þeirrar hjúkrunar sem þörf er á hverju sinni hjá sínum skjólstæðingahópi. Einnig tryggir hann góð samskipti og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.

Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
- Fjölbreytt reynsla í hjúkrun 
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Faglegur metnaður og reynsla af teymisvinnu 
- Gilt ökuleyfi og hreint sakavottorð
- Góða íslensku og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. 

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. 

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.07.2020

Nánari upplýsingar veitir
Sigrún Kristín Barkardóttir - [email protected] - 513-6900
Hildur Sigurjónsdóttir - [email protected] - 513-6900


Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Hlíðasmára 17
201 Kópavogur



Smellið hér til að sækja um starf

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum